Leiðtogi framleiðsluteymis í steypuskála / Coach for the Production Team in the Casthouse
Mótaðu veröldina þína
Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri.
Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.
Alcoa Fjarðaál leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi í starf leiðtoga framleiðsluteymis í steypuskála.
Meginverkefni leiðtogans eru að leiða teymi, sinna mönnun og öðrum stjórnunartengdum verkefnum, fylgja eftir framleiðsluáætlunum og taka virkan þátt í daglegum verkefnum við framleiðslu.
Almennt um starfið
Markmið og tilgangur starfs
Að leiðbeina og efla áhugasama, ábyrga og hæfa einstaklinga innan framleiðsluteymis.
Teymis sem leitar stöðugt leiða til að bæta öryggi og heilsu, stuðla að starfsánægju, lágmarka losun og uppfylla þarfir viðskiptavina með því að bæta framleiðsluferli, viðhalda gæðum, auka áreiðanleika og lágmarka sóun.
Verksvið
* Lágmarkar áhættu og vinnur að öruggu og heilsusamlegu starfsumhverfi.
* Leiðbeinir einstaklingum í teyminu til að styrkja þá og efla.
* Vinnur að góðum starfsanda, eflir og hvetur sitt teymi til dáða.
* Framfylgir framleiðsluáætlunum.
* Fylgir eftir þeim væntingum sem gerðar eru til framleiðslustarfsmanna eins og þær eru skilgreindar í aðal- og aukahlutverkalýsingum.
* Tekur þátt í ráðningu nýrra starfsmanna.
* Vinnur að úrlausn ágreiningsmála í samvinnu við aðra stjórnendur og mannauðsteymi.
* Er leiðandi í umbótastarfi og rannsóknum atvika til að auka öryggi og bæta framleiðsluferla.
* Sinnir verkefnum innan síns ferlis.
* Sér til þess að umgengni á sínu framleiðslusvæði sé til fyrirmyndar.
Dagleg verk
* Hefur viðveru á framleiðslugólfi að jafnaði 50% af sínum vinnutíma.
* Veitir endurgjöf á hverri vakt til þeirra starfsmanna sem eru á vakt hverju sinni.
* Gerir úttektir á hverri vakt á öryggismálum, umhverfi, verklagi, umgengni o.fl.
* Fylgir eftir starfsþróun starfsmanna og tekur að lágmarki tvö starfsþróunarsamtöl við hvern starfsmann á ári.
* Tryggir rétta mönnun vakthópa, þjálfun þeirra og vinnuskil.
Ábyrgð í starfi
Leiðtogi starfar í umboði framkvæmdastjóra ferlis.
Meginábyrgð leiðtoga er að halda utanum framleiðsluteymi.
Leiðtogi ber ábyrgð verkstjóra skv.
lögum nr.
46/1980, Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum.
Grunnkröfur
Menntun og/eða réttindi sem krafist er
Ekki eru gerðar sérstakar kröfur um menntun, en öll menntun sem gæti nýst í starfi er kostur.
Reynsla sem krafist er
Starfsreynsla á vinnumarkaði, a.m.k.
5 ár.
Starfsreynsla í framleiðslufyrirtæki er kostur.
Stjórnunarreynsla er kostur.
Hæfni ...
- Rate: Not Specified
- Location: Reyðarfirði, IS-6
- Type: Permanent
- Industry: Arts
- Recruiter: Alcoa USA Group
- Contact: Not Specified
- Email: to view click here
- Reference: Req-37899
- Posted: 2026-06-24 09:11:12 -
- View all Jobs from Alcoa USA Group
More Jobs from Alcoa USA Group
- HR Generalist
- Contractor Coordinator/Maintenance Planner
- Manufacturing Accountant
- System Applications Engineer
- Account Manager
- Account Manager
- Mold Process Engineer, Automotive Division
- Account Manager
- Investment Associate
- Principal Systems Architect
- Director of Engineering
- SAP Integration Lead
- Process Engineer
- Associate New Product Development Manager
- Associate New Product Development Manager
- System Applications Engineer
- System Applications Engineer
- Quality Engineer (Aerospace casting) (Bloomington, MN)
- Dimensional Inspector I (Albany, OR)
- Forklift Driver- 2nd shift (Bloomington, MN)