US Jobs US Jobs     UK Jobs UK Jobs     EU Jobs EU Jobs


Rafvirki í háspennu / High Voltage Electrician

Mótaðu veröldina þína

Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri.

Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.

Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum og jákvæðum rafiðnaðarmanni í starf rafvirkja í háspennu.

Teymið sinnir daglegum rekstri rafveitu, annast viðhald há- og lágspennubúnaðar, eftirlitsferðum, ásamt prófunum á varnarbúnaði, rofum, spennum, öryggisbúnaði og örðru sem tengist rekstri rafveitu.

Rafvirki rafveitu er á bakvakt reglulega eina viku í senn.

Alcoa Fjarðaál er stærsti raforkunotandi á Íslandi og rafveitan er fjölbreyttur og krefjandi starfsvettvangur þar sem öryggismál eru ávallt í forgrunni.

Ábyrgð og verkefni


* Dagleg umsjón með rekstri rafveitu


* Útlæsing háspennubúnaðar


* Uppsetning öruggs vinnusvæðis háspennu


* Viðbrögð við rekstrartruflunum


* Prófun á öryggisbúnaði


* Meðhöndlun og greining olíusýna


* Almenn rafvirkjastörf

Menntun, reynsla og hæfni


* Sveinspróf í rafvirkjun


* Reynsla í starfi æskileg


* Reynsla af rekstri og viðhaldi háspennubúnaðar er kostur


* Sterk öryggis- og gæðavitund


* Lipurð í samskiptum og jákvætt viðmót


* Frumkvæði, sjálfstæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð


* Góð íslensku- og enskukunnátta

Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur.

Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar.

Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.

Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Kolfinna Finnsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið kolfinna.finnsdottir@alcoa.com  

Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri.

Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í. 

Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr.

150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Hægt er að sækja um starfið á Alcoa.is.

Umsóknarfrestur er til og með 5.

april.

_________________________________________________________________________________

Alcoa Fjarðaál seeks a motivated and positive electrician for a High Voltage Electr...




Share Job