US Jobs US Jobs     UK Jobs UK Jobs     EU Jobs EU Jobs


Verkefnastjóri fjárfestinga / Capital Projects Specialist

Mótaðu veröldina þína

Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri.

Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.

Alcoa Fjarðaál leitar að öflugum einstaklingi í spennandi starf verkefnastjóra fjárfestinga í framleiðsluþróunarteymi.

Álver Alcoa Fjarðaáls er hátæknivætt og hefur stöðugar umbætur að leiðarljósi.

Verkefnastjóri fjárfestinga stýrir fjölbreyttum fjárfestingarverkefnum frá undirbúningi til verkloka og sér til þess að verkefnin uppfylli gæðakröfur og séu unnin á öruggan hátt innan tímaramma og kostnaðaráætlana.

Ábyrgð og verkefni


* Skilgreina og skipuleggja fjárfestingarverkefni


* Áætla framkvæmdatíma, mannaflaþörf og kostnað


* Afla samþykkis og fjármögnunar fyrir verkefni


* Tryggja að verkefni samræmist stefnu, stöðlum og reglum Alcoa


* Vinna útboðsgögn og annast samskipti við birgja og verktaka


* Tryggja gott upplýsingaflæði og fylgja eftir framkvæmd verkefna

Menntun, reynsla og hæfni


* Háskólamenntun sem nýtist í starfi


* Reynsla af verkefnastjórnun er kostur


* Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð


* Skipulagshæfileikar og samskiptahæfileikar


* Gott vald á íslensku og ensku

Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur.

Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar.

Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.

Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Kolfinna Finnsdóttir, sérfræðingur í ráðningum í gegnum netfangið kolfinna.finnsdottir@alcoa.com  

Við erum gildisdrifin, knúin framtíðarsýn og sameinuð af tilgangi okkar að nýta tækifærin til að ná árangri.

Skuldbindingar okkar varðandi þátttöku, fjölbreytni og jöfnuð fela í sér að bjóða upp á trausta vinnustaði þar sem öryggi og virðing eru í heiðri höfð og allir einstaklingar eru án aðgreiningar, lausir við mismunun, einelti og áreitni og að vinnustaðir okkar endurspegli fjölbreytileika samfélaganna sem við störfum í. 

Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr.

150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Hægt er að sækja um starfið á Alcoa.is.

Umsóknarfrestur er til og með 20.

febrúar.

--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Alcoa Fjarðaál seeks a dynamic individual for the exciting role of Capital Project Specialist in our production develo...




Share Job