US Jobs US Jobs     UK Jobs UK Jobs     EU Jobs EU Jobs

   

Framleiðslutæknir í tækniteymi kerskála / Process Technician in the Potroom Technical Team

Mótaðu veröldina þína

Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri.

Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.

Alcoa Fjarðaál leitar að metnaðarfullum framleiðslutæknir til að ganga til liðs við tækniteymi kerskála.

Framleiðslutæknir ber ábyrgð á þróun framleiðsluferla og vinnur að umbótum á búnaði og verklagi með það að markmiði að auka öryggi, lágmarka umhverfisáhrif og hámarka nýtni í álframleiðslunni.

Að auki er unnið náið með öðrum teymum.

Staðan er tilgreind sem JB 20 eða JB 25

1.

Almennt um starfið

Markmið og tilgangur starfs

Styðja við málmframleiðslu samkvæmt verklagi með áherslu á stöðugleika, þjálfun og tæknilegar umbætur.

Verksvið eða meginverkefni starfsins

· Sinna eftirliti með ástandi búnaðar

· Hafa umsjón með framkvæmd verkferla og tryggja að gæði framleiðslu sé haft að leiðarljósi við umbætur

· Leita að umbótum, styðja þær og reka á framleiðslusvæðinu

· Leiðbeina og hvetja teymi til að ná framleiðslumarkmiðum

· Tileinka sér stjórnunaraðferðir og þróa tæknilega kunnáttu og færni

· Vinna að því að starfsemi sé hagkvæm og skilvirk

· Afla sér upplýsinga og sérhæfingu á framleiðslusvæðinu

· Hvetja fólk og veita endurgjöf

· Að vinna með yfirverkfræðingi/tæknistjóra teymis að endurbótum og undir handleiðslu hans

· Umsjón með helstu mælikvörðum teymisins

· Taka þátt í tækniþjálfun framleiðslustarfsmanna

· Verkefni úthlutað af yfirmanni

· Tæknilegur stuðningur við daglega framleiðslu og stuðla að framleiðni

Ábyrgð í starfi

· Virða og framfylgja gildum og stefnu Alcoa

· Að unnið sé skv.

samþykktum ferlum og verklagsreglum

· Framfylgja gæða- og umhverfisstöðlum

· Framfylgja lögum, reglum og stöðlum

· Tæknilegar upplýsingar séu hagnýttar á faglegan hátt

· Koma á framfæri upplýsingum til yfirverkfræðings/tæknistjóra teymis um rekstur og ástand búnaðar

· Tæknileg þjálfun framleiðslustarfsmanna

2.

Grunnkröfur

Menntun og/eða réttindi sem krafist er

Stóriðjuskóli Alcoa Fjarðaáls eða Víðtæk reynsla sem rafgreinir.

Reynsla sem krafist er

Lágmark 5 ára starfsreynsla í einu af framleiðsluferlum Fjarðaáls.

Hæfni sem krafist er

Skipulagning, áætlanagerð, frumkvæði, hæfni til ákvarðanatöku, mannleg samskipti.

Samskiptafærni og samstarfsaðilar í starfinu

Starfsmanni ber að eiga góð samskipti við alla starfsmenn fyrirtækisins og vinna með öðrum teymum sé þess óskað.

Eiga náin og góð tengsl við yfirverkfræðing/tæknistjóra teymis sem og leiðtoga og fylgja eftir verkefnum í samráði við þá.

Ytri samskipti geta verið við úttektaraðila, viðskiptavini og sérfræðiteymi innan Alcoa til að sækja tæknilega ráðgjöf.

Alco...




Share Job