US Jobs US Jobs     UK Jobs UK Jobs     EU Jobs EU Jobs

   

Vinnuvistfræðingur / Ergonomist

Mótaðu veröldina þína

Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri.

Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.

Við leitum að öflugum og metnaðarfullum vinnuvistfræðingi til að ganga til liðs við umhverfis-, heilsu- og öryggisteymið okkar.

Starfið felur í sér að þróa og innleiða vinnuvistfræðileg úrræði sem stuðla að bættri heilsu og vellíðan starfsmanna.

Helstu verkefni:


* Greining á vinnuaðstæðum og ráðgjöf um úrbætur í vinnuumhverfi.


* Þróun og framkvæmd forvarna- og heilsueflingarverkefna í samstarfi við heilsugæslu Alcoa.


* Fræðsla og þjálfun starfsmanna í vinnuvistfræði og líkamsbeitingu.


* Samvinna við aðrar deildir til að tryggja heildræna nálgun á heilsuvernd.

Hæfniskröfur:


* Menntun í vinnuvistfræði, sjúkraþjálfun eða skyldum greinum.


* Reynsla af vinnuvistfræðilegri greiningu og ráðgjöf er kostur.


* Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna í teymi.


* Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

Starfið heyrir undir UHÖ og vinnur náið með heilsugæslu að heilsutengdum verkefnum.

Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í að skapa öruggara og heilbrigðara vinnuumhverfi, þá viljum við heyra frá þér!

Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur.

Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar.

Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.

Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.

Frekari upplýsingar veitir Kolfinna Finnsdóttir í tölvupósti kolfinna.finnsdottir@alcoa.com.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr.

150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Hægt er að sækja um starfið á www.Alcoa.is.

Umsóknarfrestur er til 15 September 2025.

________________________________________________________________________________

We are seeking a dedicated and proactive Ergonomist to join our environment, health & safety team.

This role focuses on developing and implementing ergonomic solutions that promote employee health and well-being.

Key Responsibilities:


* Assess workplace conditions and provide recommendations for ergonomic improvements.


* Develop and implement preventive health and wellness initiatives in collaboration with the Alcoa health department.


* Conduct training and education sessions on ergonomics and proper body mechanics.


* Work closely with other departments to ensure a holistic approach to occupational health.

Qualifications:


* Degree in Ergonomic...




Share Job