US Jobs US Jobs     UK Jobs UK Jobs     EU Jobs EU Jobs

   

Spennandi stjórnunarstörf

Mótaðu veröldina þína

Sem starfsmaður Alcoa verður þú mikilvægur hluti af tilgangi fyrirtækisins: að nýta tækifærin til að ná árangri.

Í okkar augum er sérhver starfsmaður Alcoa teymismaður, hugmyndaskapari og heimsmótandi.

Spennandi stjórnunarstörf

Alcoa Fjarðaál er að fjölga leiðtogum í  stjórnendateymið.

Í boði eru skemmtileg og krefjandi störf sem henta vel jákvæðum, drífandi og metnaðarfullum einstaklingum sem vilja ná árangri í sínu starfi.

Meginverkefni leiðtoga er að leiða teymi með tilheyrandi mönnun og stjórnunartengdum verkefnum, fylgja eftir framleiðsluáætlunum og taka virkan þátt í daglegum verkefnum við framleiðslu.

Hjá Alcoa Fjarðaál er lögð áhersla á jákvæð samskipti og góðan starfsanda.

Við leggjum metnað okkar í að ná árangri, vinna stöðugt í umbótum, fylgja stöðlum og tryggja öryggi okkar allra á vinnustaðnum.

Ábyrgð og verkefni


* Stjórnunartengd verkefni



* Virk þátttaka í daglegum verkefnum við framleiðslu


* Eftirfylgni með að framleitt sé samkvæmt áætlun


* Eftirfylgni með að framleitt sé samkvæmt gæðakröfum og stöðlum Alcoa


* Leiða stöðugar umbætur teymisins

Reynsla og hæfni


* Stjórnunarreynsla er æskileg



* Rík samskiptahæfni og metnaður


* Frumkvæði, drifkraftur og almenn jákvæðni


* Skipulagshæfni og umbótahugarfar


* Rík öryggis- og gæðavitund


* Góð tölvukunnátta og gott vald á íslensku og ensku.

Alcoa Fjarðaál er stór og lifandi vinnustaður sem aldrei sefur.

Saman sköpum við útflutningsverðmæti á öruggan og ábyrgan hátt, allan sólarhringinn, alla daga ársins.

Alcoa Fjarðaál býður samkeppnishæf laun og minni vinnuskyldu en almennt þekkist og er aðbúnaður starfsmanna til fyrirmyndar.

Öryggi og heilbrigði eru ávallt forgangsmál á vinnustaðnum og tækifæri til þjálfunar, menntunar og starfsþróunar eru mikil.

Gildi Alcoa eru heilindi, árangur, umhyggja og hugrekki.

Í samræmi við jafnréttisstefnu Alcoa Fjarðaáls og lög nr.

150/2020 eru einstaklingar af öllum kynjum hvattir til að sækja um.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Davíð Þór Sigurðarson framkvæmdastjóri kerskála, í tölvupósti david.sigurdarson@alcoa.com eða í síma 843 7785

Hægt er að sækja um starfið í Workday.

Umsóknarfrestur er til og með sunnudeginum, 21.

apríl.

Exciting management jobs

Alcoa Fjarðaál is hiring leaders in the management team.

We offer enjoyable and demanding positions well suited to positive, driven, and ambitious individuals who want to succeed in their work.

The main task of a leader is to lead a team with associated staffing and management-related tasks, follow up on production schedules, and actively participate in the daily production tasks.

At Alcoa Fjarðaál, the emphasis is on positive communication and good morale.

We are committed to success, continuous imp...




Share Job